Halló það er búið að vera fínt veður hérna í dag maður ussss

Hvernig er það vantar ekki einhver þarna úti toll undir Tý frá Skeiðháholti eða Dósent frá Brún?? Týr er undan Hrafni frá Holtsmúla, klárhestur með 8,23 í aðaleinkun myndarlegur klár, hann er með 8,34 í sköpulag, tollurinn undir hann er á 55 þúsund með öllu og á ég 1 toll sem ég væri til í að selja

hann verður hérna í Eyjafirði á fyrra gangmáli. Tollurinn undir Dósent er á líklega 40 eða 45 þúsund, hann er undan Heldi frá Brún, og er með 8,01 í aðaleinkun 4 vetra gamall og hefur verið að gefa mjög skemmtileg hross, sérstaklega gott tölt, þar á ég líka 1 toll sem er til sölu líka ef einhver hefur áhuga

Annars er lítið að frétta bara vinna og reyna að stunda einhverja hestamennsku

Nú er farið að styttast í Tekið til kostanna, en sú sýning er 26 apríl, eða já sú sýning sem ég og einhverjir félagar ætla að kíkja á

þó svo að það sé nú alltaf einhverjir að detta út

ekki hrifin af þessu, já og svo eru úrslit svarfdælsku mótaraðarinnar á laugardaginn, Bjarni verður þar með hana Ósk (Nasardóttir

) í 4-gang, samt pínu vonbrigði með þessa mótaröð að mínu mati, ekki mikið af sterkum hrossum þarna en þau leynast inná milli

Hætt var við ræktunarbúsferðina sem við ætluðum í á laugardaginn vegna lélegrar mætingar

Ég og Guðrún erum búin að vera saman í 6 ár á morgun, ussss viljiði pæla aðeins í því mar, þetta er rosalegt, og svo er alltaf að styttast í erfingjan

en Jæja þá held ég að þetta sé bara að verða ágætt í bili.